Beint á leiðarkerfi vefsins
Merki - Rannsóknamiðstöð Íslands

Rannsóknir og þróun, nýsköpun, tölfræði vísinda

8.10.2010

Kynning á áætlun ESB um rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja

Þriðjudaginn 19. október mun Rannís standa fyrir kynningu á áætlun Evrópusambandsins - Rannsóknir í þágu lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Áætlunin gengur út á að auka samstarf milli atvinnulífs og rannsóknastofnana óháð rannsóknasviði. Kynningin fer fram á Grand hótel Reykjavík milli kl. 9.00 og 11.30.

29.9.2010

Kynning á upplýsingatækniáætlun 7.rá

Mánudaginn 4. október kl. 8:30-10:30 stendur Rannís fyrir kynningarfundi fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér upplýsingatækniáætlun 7. rannsóknaáætlunarinnar. Morten Möller frá framkvæmdastjórn ESB kynnir áætlunina og þjónusta Rannís verður einnig kynnt. Fundurinn verður á Grand Hótel Reykjavík og er morgunmatur í boði fyrir gesti.

27.9.2010

Aldrei fleiri á Vísindavöku

Vísindavaka - má ég sjá!Vísindavaka Rannís 2010 var haldin föstudaginn 24. september sl. og komu 4200 gestir á vökuna. Gestir Vísindavöku fengu tækifæri til að hitta vísindamenn og fræðifólk úr öllum fræðigreinum frá háskólum, rannsóknastofnunum og fyrirtækjum, sem sögðu frá rannsóknum sínum og viðfangsefnum á skemmtilegan og lifandi hátt. Rannís þakkar sýnendum fyrir þeirra framlag og gestum fyrir komuna. Sjáumst á Vísindavöku 2011!

24.9.2010

Til hamingju með daginn vísindamenn!

Vísindavaka Rannís er haldin föstudaginn 24. september kl. 17-22 á Degi evrópska vísindamannsins. Vísindavaka er haldin í flestum borgum Evrópu á sama tíma og markmiðið er að færa vísindin nær almenningi og gefa fólki kost á að spjalla við fræðimenn um rannsóknir þeirra og viðfangsefni. Um 70 sýningarbásar eru á Vísindavöku 2010, lifandi vísindamiðlun verður á sviði, auk þess sem vísindasmiðja verður fyrir börn. Sprengjugengið mætír á svæðið, boðið verður í stjörnuskoðun, Vísindavefurinn spurður út úr og súkkulaði sent um internetið. Vísindavaka Rannís er fyrir alla fjölskylduna! Dagskráin og listi sýnenda hér.
FP7 SMEs info day

Mynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta